
Klappið taktinn og hafið áherslu á fyrsta slaginu.
Gerið þetta líka og syngið lagið með.
Prufið líka að stappa alltaf fyrsta slagið og klappa hin slögin.
Syngið lagið og leikið á ýmis ásláttarhljóðfæri, hafið fyrsta slagið með áherslu til dæmis með því að spila það með bassatrommu eða symbal.
Fyrri hlutinn er í moll en seinni hlutinn er í dúr. Eftir að báðar vísurnar hafa verið sungnar er sú fyrri endurtekin. Lagið er því í ABA formi.
Orðabókin: Hver er "dýra súðin"? __________________________












