Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar

Árið 1999 var stofnað Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði. Það setti sér að markmiði að koma á fót þjóðlagasetri á Siglufirði,

Félag um þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði


Árið 1999 var stofnað Félag um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar á Siglufirði. Það setti sér að markmiði að koma á fót þjóðlagasetri á Siglufirði, halda árlega þjóðlagahátíð í bænum og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistararfi. Þjóðlagasetrinu er ætlað tvíþætt hlutverk: 

1. Að kynna þjóðlagaarfinn á aðgengilegan hátt með sýningu sem taki mið af ferðamönnum að sumri en skólafólki á vetri

2. Að sinna rannsóknum og útgáfustarfsemi á íslenskum þjóðlögum 

Árið 2000 keypti Félag um Þjóðlagasetur Maðdömuhúsið svokallaða, eitt elsta hús Siglufjarðar, þar sem sr. Bjarni Þorsteinsson skráði þjóðlagasafn sitt að stórum hluta á árunum 1888-1898. Húsið var fært til upprunalegs horfs og vígt af forseta Íslands sumarið 2006. Þar gefur að sjá á myndböndum fólk víðs vegar að af landinu við kveðskap og hljóðfæraleik, auk þess sem eldra fólk segir frá tónlistariðkun í heimabyggð sinni.


Stjórn Félags um Þjóðlagasetur sr. Bjarna Þorsteinssonar:

  • Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður, formaður
  • Sigurður Hlöðvesson bæjartæknifræðingur, ritari
  • Ingibjörg Ásgeirsdóttir bókasafnsvörður, gjaldkeri
  • Elsa Herjólfsdóttir þjóðfræðingur og kennari
  • Hermann Einarsson fulltrúi bæjarstjórnar

Varastjórn:

  • Dúi J. Landmark kvikmyndagerðarmaður
  • Þórir K. Þórisson bæjarstjóri

Þeir sem vilja skrá sig í félagið geta gert það hér.



Auglýsingar

Raddir Íslands
Fjallabyggð
Menningarráð Eyþings
Tónlistarsjóður
Rauðka ehf
Gistihúsið Hvanneyri
Síldarminjasafnið
Siglufjarðarkirkja
Rammi
Tónastöðin
Byko
Norvík

Mynd augnabliksins

eddie-walker_lowr.jpg

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf